26.12.2007 13:54:33 / sara

Það var mikið að eg komst inn....

.....það var mikið segi ég nú bara....bloggleysið er sko ekki af því ég hef ekki nennt að blogga eða e-ð...heldur af því ég mundi ekki lykilorðið! :S

En það er allt í lagi... :) ég er bara heima að slappa af eftir MIKIÐ át síðustu daga! Guð mnn góður hvað maður getur borðað mikið! Af hverju borðar maður svona mikið alltaf á jólunum?? eg skil þetta ekki! Vill e-r svara þessari spurningu fyrir mig??

 En jólin eru s.s. að verða búin :( Bara vinna á morgun og svona...en það eru bara 2 daga og svo koma nottla áramótin og þá er einn frídagur líka! ;) Hvað er málið um áramótin??

Kannski að maður fari e-ð í partý og svo í bæinn eins og svo marga daga í desember! hvað er málið....ég fer aldrei á djammið...en gott að ég er búin að fara svona 5 sinnum í desember!

En já.....jólin búin og ég fékk ekkert smá flottar gafir ;) úr Fossil úr frá mömmu og pabba, Hugo Boss ilmvatn og body lotion og leikhúsmiða í Borgarleikhúsinu frá Ísak, Elisabeth Arden body lotion og shower gel frá Bæring, Örnu og Begdísi, jólasveinastyttur frá Bryndísi.....hmm...man ekki meir....jú auðvitað öll þessi jólakort með myndum af afkvæmum vinanna ;) Takk allir saman!

Annars hef ég ekki mikið annað að segja....fór í 50 manna hangikjötsveislu til Hugrúnar frænku í gær og ætla að liggja heima í leti í dag...alla vega þar til Hugrún og fjölskylda og amma koma á eftir í kökur ;) JESÚS....ætlar þetta át aldrei að taka enda!

Verð að vera dugle á morgun og fara að lyfta og á æfingu og svona til að ná jólaspikinu af!! Svo á morgun er líka e-ð dæmi hjá Hafnarfjarðarbæ sem við í Haukum þurfum að mæta á....e-ð verið að verðlauna okkur fyrir alla titlana sem við unnum á árinu ;)

En annars segi ég bara.....Gleðileg jól allir og hafið það gott það sem eftir er af hátíðunum! ;)

Jólaknús á alla!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.11.2007 17:58:12 / sara

Fer ALVEG að byrja aftur! ;)

Ég sé það að ég á greinilega rosa marga bloggaðdáendur!! það er alveg heilt 1 komment við síðustu nokkrum færslum...ef þau eru e-r!

 en það er allt í lagi....

 

Eg fór til læknis á föstudaginn og hann tjáði mér það að ég mætti byrja að æfa á næsta föstudag! JEY!! en ég nottla grét það út að fá að byrja að hjóla á mánudaginn! ;) þannig að mæti á mánudagskvöldið í Hress að hjóla! JEY....það er alla vega smá hreyfing. Svo sjáum við til hvernig þetta verður. Ef ég finn e-ð til þá verð ég að hætta strax og stoppa í viku og prófa þá aftur og ef það virkar ekki þá þarf ég að hætta aftur í aðra viku og svona....en þetta kemur allt saman! ;)

 

Annars er voða lítið að frétta sko.....hef eila bara ekkert að segja. Jú.....tvö jólahlaðborð á næstunni. Fer með Haukum 14. des og svo með vinnunni 15. des, bara gaman! ;) Svo er nottla bara mánuður í jólin og við förum ALVEG að meiga byrja að skreyta! kannski að við stelumst til að setja upp nokkrar seríur um næstu helgi....sjaum til..

Annars bara þangað til næst.......bæjó elskurnar!


» 1 hafa sagt sína skoðun

31.10.2007 16:20:43 / sara

Komin heim

Ætlaði bara að láta vita að ég er komin heim af sjúkrahúsinu ;) kom heim um kl. 4 i gær.

Aðgerðin gekk bara vel og ég ligg bara í rúminu......og mun gera það næstu daga!! Ég hef alla vega ekki ennþá orku til að vera mikið á fótum...ekkert voða gott að standa á fætur af því það tekur svo mikið í sauminn.

 En fólk verður bara að vera duglegt að blogga fyrir mig ;) svo ég hafi e-ð að gera næstu daga! Annars er Rut æðibiti að koma til mín eftir vinnu og ætlar að lána mér flakkarann sinn! ;) þannig að mér ætti ekki að leiðast ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.10.2007 22:45:05 / sara

Fullt af vatni runnið til sjávar!

Já það er sko fullt af vatni runnið til sjávar síðan ég skrifaði hérna inn síðast!

 Leiðtíðin byrjuð og allt....við erum búnar að spila 3 leiki í deildinni og auðvitað vinna þá alla :) og ég er nú búin að fá ágætis tækifæri í vetur! ;) sem er auðvitað bara gott mál.

 .......En þá kemur auðvitað óheppnin upp hjá mér! eða kannski ekki óheppnin. Ég er búin að vera meidd í náranum síðan í október í fyrra. Þetta er e-ð sem enginn læknir hefur fundið út...allir með sama svarið: Bólgur í sinum í náranum....en núna er komið annað upp! ég er sem sagt búin að fara í allar mögulegar myndatökur og rannsóknir og enginn finnur neitt. En það er sem sagt komið í ljós núna að eg er kviðslitin! í náranum!!

 Og það fyndna við þetta er að læknirinn sagði að það væru í 99% tilvika fótboltaSTRÁKAR sem fengju þessi meiðsli! og auðvitað er ég þetta 1% af stelpum sem fá þetta!ARG!!

 En ég fer sem sagt í aðgerð á þriðjudagsmorguninn kl. 9 þannig að allir (ef e-rjir lesa þetta blogg mitt) mega hugsa vel til mín á þriðjudaginn! ;)

 

Ég held að ég skrifi nú e-ð aðeins meira á næstunni þar sem ég verð rúmliggjandi næstu 10 daga á eftir! engin vinna og ekki neitt....og ég má ekki fara á æfingu aftur fyrr en í desember! þannig að það þýðir líka að ég á ekki eftir að spila fyrr en í janúar! :(

 

En svona er bara lífið fólks ;) vonandi verð ég bara betri eftir þetta allt saman ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.09.2007 11:52:09 / sara

Haukagellur ATH

Ég var að búa til Haukagellu síðu ;)

 hérna er hún.....

haukagellur.bloggar.is

Endilega Tjékk it át ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.09.2007 15:21:18 / sara

Tinna Hrund,,,

.....Er ekki að bjóða mér á leikinn :(

 ......en í staðin ætlar kannski Rut krúttbomba með meiru bara að bjóða ;)

 

Æðislegt að eiga svona góðar vinkonur :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.09.2007 12:38:51 / sara

---

Hvernig stendur á því að það eru t.d. í dag 10 búnir að koma inn á síðuna....en ekki eitt einasta komment!! í MARGA daga!!

 En annars er nú ekki mikið að frétta...er bara alltaf að vinna og æfa og vinna meira og æfa meira....nema í kvöld....þá ætla ég að fara á Ísland-Austurríki í körfunni, með Haukagellunum ;)

Og svo var hún Tinna Hrund æðibiti svo æðisleg...að bjóða mér með á landsleikinn á laugardaginn í fótboltanum...Ísland-Spánn. Vá hvað það verður gaman!

 

Takk þúsund sinnum Tinna ofurkrútt! hlakka til að fá þig loksins í bæinn ;)

 

Annars var það ekki annað...ætlaði bara að skrifa nokkrar línur til að láta vita að ég væri enn á lífi ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.08.2007 11:48:21 / sara

Ég kann þetta sko alveg ennþá ;)

Já ég veit alveg að ég er búin að vera léleg að blogga í sumar!!

 Það er bara búið að vera svo mikið að gera, bæði í vinnunni og í körfuni...svo ég tali nú ekki um á djamminu ha ha ah

Ég er rétt að verða búin að jafna mig á verslunarmannahelginni.....vá hvað þetta var skemmtileg helgi...fór auðvitað á ísó písó....í Mýrarboltann og á djammið auðvitað ;)

Ég var mætt fyrir utan Vodafone kl. 16 á föstudaginn til að sækja Rut og Silfá....og við brunuðum af stað til Ísafjarðar. Vorum komnar um 21:30 eða e-ð og þá var auðvitað skellt sér á Langa og fenginn sér öl ;)

Laugardagurinn var ekkert smá skemmtilegur....var komin á Mýrarboltasvæðið kl. 12:30 ;) í skítakulda og rigningu...ekki gott.....en það var samt svo gaman að maður gleymdi eiginlega kuldanum. Ég og Fatlafólin mín spiluðum 3 leiki á og enduðum daginn í 2. sæti í riðlinum...ekki slæmt það ;) Eftir boltann bauð Berglind frænka mér og Rut í mat....takk fyrir það ;) fengum ekkert smá gott grill og svo eplaköku í eftirrétt ;) og eftir það var skundað á djammið...fórum heim til Unnar....og ég drakk heilan 1,5 bjór!! TIL HVERS!!...bara til að þurfa að skilja bílinn eftir á Urðarveginum og labba í bæinn! en ég var léleg það kvöld og var komin heim um 2 eða e-ð...enda búin á því eftir átök dagsins...

Á sunnudaginn var komið rosalegt veður....sól og hiti ;) en boltinn fór reyndar ekki eins vel :( við duttum út í 8 liða úrslitum í vítaspyrnukeppni :( þar sem ég gerði mér lítið fyrir og skaut svo himinhátt yfir markið að annað eins hefur ekki sést....en svo skaut læknaneminn líka framhjá....þannig að við töpuðum.....

En ég skorðaði þó 1 mark í mótinu...ekkert smá sátt við það ;) ég og Sandra settum sitthvort markið......ekki lélegt það....sérstaklega þar sem liðið skoraði bara 3 mörk í mótinu ha ha ha ha...

En sunnudagskvöldið var frábært....matur+ball í Edinborg....Ó MEN hvað þetta var gaman....og kannski að sumir hafi drukkið aðeins meira en aðrir!!! ha ha ha ha

Alla vega þá var stoppað á 1 stað í djúpinu á leiðinni heim....bara til að fá sér frískt loft ha ha ha ah

 En núna er sumarið eiginlega búið :( og lífið bara tekið aftur við....ég verð bara áfram hérna í Hnit í vetur og geri líklega ekkert annað en að vinna og æfa í vetur :)

En annars langar mig ROSALEGA að fara til útlanda.....er e-r sem er til í að skella sé með mér??

 

Ég held að þetta sé bara komið gott.....þarf að fara að halda áfram að vinna ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.06.2007 12:12:16 / sara

ekki alveg mín happavika!

vá hvað þessi vika er ekki búin að vera mér hliðholl!!

Á mánudaginn fór ég í vinnuna eins og alla hina dagana....og fór svo í Hreyfingu og síðan heim eins og ég geri alla daga! en þennan dag gerðist svolítið! :(    þegar ég kom heim þá sá ég að það var búið að keyra utan í bílinn minn!! þannig að núna á ég bara beyglaðan bíl!! og það versta er að ökumaðurinn stakk af þannig að ég sit uppi með að borga viðgerðina sjálf! HVAÐ ER AÐ FÓLKI....getur það ekki verið gott fólk og látið vita eða alla vega skilið eftir miða á rúðuþurkunni ef það keyrir á!

Svo var ég alveg að jafna mig á þessu á þriðjudaginn....hann var eins og hinir dagarnir....fór í vinnu og svo á æfingu...en þessi æfing varð ferkar í styttri kanntinum!

Við vorum búnar að hlaupa og gera alls konar æfingar í kannski 20 mín þegar við áttum að gera e-a sprettæfingu...og ég auðvitað geri hana eins og hinar stelpunar. Við áttum bara að taka 200 m sprett....sem alla jafna ætti nú ekki að snúast fyrir mér! en í þetta skiptið ákváðu lærin mín að segja hingað og ekki lengra!...ég var búin að hlaupa svona 20 m þegar ég byrja að stífna upp í lærunum....það kemur þessi líka svakalegi sinadráttur! í BÆÐI lærin!

Við erum sko ekkert að tala um neinn venjulegan sinadrátt sko....við erum að tala um það að ég gat ekkert gert...ég gat staðið með herkjum...ekki legið, teygt á eða hvað þá setið! ég gat ekki einu sinni keyrt bílinn minn heim af æfingu! Ég var í Kaplakrika og beið þar og vonaði að þetta myndi líða hjá...40 mín seinna var æfingin búin og ekki batnaði sinadrátturinn! og ég hringdi í Hugrúnu frænku og bað hana að keyra mig heim!

Ég þurfti reyndar að keyra heim til hennar....en ef löggan hefði séð mig þá hefði hún eflaust stoppað mig, þar sem ég keyrði um eins og að ég væri drukkin! en þetta hafðist allt fyrir rest og ég komst loksins heim.

um kl. 22:30 þegar herlegheitin höfðu staðið yfir í litlar 3 klukkustundir...fóru þær loksins að minnka! og ég gat loksins sofnað! En á tímabili hélt ég bara að þetta væri mitt síðasta! ég kúgaðist og svimaði og sá stjörnur og allt af sársauka! Guð minn góður hvað þetta var vont!....og það er ekkert grín hvað ég var þreytt á eftir! þetta voru nú engin smá átök!

Allt sem ég lærði af þessari reynslu er....að ég vona að ég hafi nú fengið minn lífstíðarskammt af sinadráttum....og að sinadráttur er sko EKKI betri en enginn dráttur!

En annars er vikan að klárast! og ég vinn bara í svona 3 tíma á morgun, þar sem ég er að fara til læknis í fyrramálið og svo í klippingu eftir matinn ;)

En hádegismaturinn kallar....


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.05.2007 21:57:49 / sara

harðsperrur í uppsiglingu

Vá hvað þessi síða mín er alveg að deyja.....bloggandinn er sko ekki búinn að vera yfir mér síðasta mánuðinn eða svo!!!

 Annars er ekkert voðalega mikið búið að gerast.....

  • kláraði prófin LOKSINS....og náði öllu. Var m.a.s. 3 hæst í einu faginu ;)....ásamt 10 öðrum ;)
  • var viku í Rvk eftir prófin á meðan við pabbi kláruðum að mála og parketleggja íbúðina.
  • hélt júróvísjon/afmælispartý á kosningadaginn.....það var ógó gaman....fékk FULLT af fólki í heimsókn og fékk ekkert smá flottar gjafir ;)
  • Fór vestur 14. maí....byrjaði á því að veikjast...
  • ...fór í sund með Bríeti og Þórunni, út að hlaupa og líka á fótboltaæfingu...
  • ...og auðvitað á djammið....sem innihélt drekktu betur keppni (sem við Bríet rúlluðum upp)!!
  • fór líka á djammið daginn fyrir hvítasunnudag....þegar útskriftin í MÍ var...fórum á Langa og svo í Krúsina.....eyddi FULLT af peningum...þar af kostaði 2.000 kr!!!! inn á Krúsina....en það var svo gaman að þetta var allt í lagi...
  • á sunnudaginn fórum við líka út ;) skelltum okkur á Langa og sátum þar frá 23:30 til svona 3:15!! geri aðrir betur....þar voru líka sumir drukknari en aðrir og líka í færri skóm en vant er  ha ha ha
  • En tíminn milli þess sem ég var sofani og kíkti á lífið....fór auðvitað í aðalmálið.....að PAKKA FJÖLSKYLDUNA NIÐUR!!

Já það er loksins komið að þessu......ég og pabbi komum keyrandi í gær frá Ísafirði með búslóðina í eftirdragi ;) svo kemur mamma á föstudaginn og Ísak kemur svona 6. júní....þá verðum við LOKSINS formlega flutt suður!

 Svo byrjaði ég lika að vinna í dag ;) fór aftur í gömlu vinnuna mína í Hnit....ótrúlegt hvað ég mundi ennþá mikið...öll lykilorð og allt ;)

Og svo eftir vinnu fór ég á æfingu áðan....vá hvað ég var fegin að hafa drifið mig....en VÁ hvað þetta var geggjað erfitt!! en gaman ;)

Ef þið sjáið e-n sem labbar um stræti Reykjavíkur eins og hún sé með spýtu í afturendanum eða e-n sem fer extra hægt upp og niður stiga....þá hafið þið alveg 99% hitt mig!! ha ha ha

Ég er alveg búin í fótunum...Silja Úlfarsdóttir er sko enginn smá þjálfari!

En þangað til næst.....


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.04.2007 21:09:17 / sara

Aðeins að stelast á netið.....

já það eru ekki nema nokkrir klukkutímar í fyrsta prófið....Ég er búin að vera rosa dugleg að læra...alla vega það mikið að ég skellti mer bara á lokahóf Hauka í gærkvöldi og í afmæli til Indu skvísu og svo á körfuboltaleik í dag ;)

 En annars verða næstu vikrnar aðeins erfiðari held ég....eg ætla reyndar að gera mér dagamun á morgun og kíkja á æfingu...Ifeoma er að fara heim þannig að ég er eiginlega að gera það fyrir hana að mæta á morgun...til að kveðja hana.

En annars ætlaði ég nú bara að skella smá kveðju hérna inn. Ætla að halda áfram að reikna pínu...annars fer ég að hætta þessu. Ef maður kann þetta ekki núna, þá held ég að maður eigi ekki að vera að þessu.....maður lærir ekkert meira úr þessu!

Í lokin vildi ég bara senda samúðarkveðjur til Rutar minnar og fjölskyldu....sendi alla vega knús núna....og hitti þig vonandi bráðum til að knúsa þig :)


» 4 hafa sagt sína skoðun

31.03.2007 23:49:27 / sara

....

Já ég veit að ég er ekkert voðalega dugleg að skrifa hérna inn....enda komin með nýja síðu með gellunum frá Ísafirði...þið getið skoðað hana hérna.

 en annars er ekkert eiginlega að frétta....er bara alltaf að læra og að æfa.... Við komumst í úrslit í Íslandsmótinu í kvöld ;) þannig að nuna eru ca. 14 dagar eftir (vonandi bara 10) af tímabilinu. En svo taka prófin við....fyrsta prófið verður á afmælisdaginn minn þannig að það verður ekkert partý þá.

En það er aldrei að vita nema að ég haldi bara eitt innflutnings/afmælispartý áður en ég fer vestur um miðjan maí ;)

En annars hef ég nú ekkert meira að segja....


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.03.2007 11:43:06 / sara

Lélegasti bloggarinn

Vá hvað ég er lélegur bloggari!

 En það er líka bara af því ég geri alltaf það sama.....bara skóli, karfa, heimalærdómur, skóli og karfa! en svona þess á milli er ég búin að mála herbergið mitt ;)..já ég er loksins komin í MITT herbergi.....og loksins flutt inn....vantar bara gardínur og e-ð á veggina ;)

 

En annars.....úrslitakeppnin að byrja í kvöld...og auðvitað mæta allir á Ásvelli að styðja okkur....leikurinn er kl.19:15 og er á móti ÍS ;)

Svo er næsti leikur á sunnudaginn kl.19:15 í Kennó....ef e-r hefur áhuga...;)

 

en þarf að fara að fylgjast með í tímanum....er í æsispennandi tölvutíma ;)

kex.....


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.03.2007 18:27:28 / sara

Fyndið

Af hverju er það alltaf þannig að þegar maður skammar fólk fyrir að kvitta ekki, þá kvitta allir þann dag og svo ekki söguna meir! ;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

07.03.2007 09:54:41 / sara

Veik eða ekki veik

Vá hvað ég þoli ekki svona daga.....af hverju getur maður ekki bara verið veikur eða frískur!

Í gær var ég "veik" eða svona....ég treysti mér ekki til að fara í skólann en fór samt á æfingu í gærkvöld....enda búin að liggja allan daginn og var orðin alveg ágæt áður en ég mætti. Svo í morgun þegar ég vaknaði þá var ég ennþá með svona hausverk og kvef og leiðindi, þannig að ég ákvað að vera ekkert að fara í skólann í dag heldur :( til að reyna að jafna mig fyrir leikinn á morgun. Við fáum nebbla deildarmeistaratitilinn afhentan á morgun og auðvitað langar mig MEST að vera í liðinu þannig að ég ætla bara að bíta á jaxlinn og mæta á æfingu í kvöld til þess að eiga möguleika á að vera í liðinu á morgun.....hvað gerir maður ekki fyrir þennan körfubolta ha ha ha

 En Sif mín.....þetta þýðir það að ég kemst ekki í heimsókn til ykkar Alberts í dag :( sorry....það er alltaf e-ð sem skemmir....ég lofa að koma til ykkar um leið og mér batnar....


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13
Sjónvarpsþættir